Flýtilyklar
Samningur um fullnaðhönnun nýs rannsóknarhús
09.10.2018
Þann 7. október síðastliðinn undirritaði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, samning um fullnaðarhönnun rannsóknahúss. Samið var við lægstbjóðanda, hönnunarteymið Corpus3, sem nú vinnur að fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans. Rannsóknahúsið er hluti af Hringbrautarverkefninu, uppbyggingu Landspítala. Með tilkomu rannsóknahúss sameinast öll rannsóknarstarfsemi Landspítala í eitt hús. Blóðbankinn verður einnig til húsa í rannsóknarhúsinu.