Flýtilyklar
17. fundur stjórnar
07.04.2015
17. stjórnarfundur haldinn 26. janúar 2015 kl. 16.00 í Heilsuverndarstöðinni
Mætt voru: Anna Stefánsdóttir, Bjarney Harðardóttir, Garðar Garðarson, Gunnlaug Ottesen, Jón Ólafur Ólafsson og Þorkell Sigurlaugsson. Anna Elísabet Ólafsdóttir boðaði forföll.
- Fundargerð 16. fundar samþykkt og undirrituð.
- Kynningarmál;
- Kynnt hugmynd og tilboð frá fyrirtækinu Hugverkamenn um gerð vefmyndbanda. Myndböndin eru ætluð til að kynna samtökin og markmið þeirra í vefmiðlum og auka þannig sýnileika þeirra. Góðar umræður urðu um hugmyndina. Talsverður kostnaður fylgir gerð slíkra myndaband og ákveðið var að leita leiða til að fjármagna 2-4 myndbönd. Einnig ræddar aðrar leiðir við gerð myndabanda m.a samtarf við LSH. Ákveðið að taka fyrir ákveðin þemu í hverjum mánuði og fjalla um þau á vefsíðunni og facebook. Ákveðið að Anna fari á námskeið hjá Endurmenntun í notkun facebook sem markaðstækis.
- Farið yfir 3ju útgáfu af kynningarblaði Spítalans okkar. Nokkar breytingar hafa verið gerðar frá fyrstu útgáfu.
- Framundan eru 10 kynningafundir á vegum samtakanna m.a. hjá Qddfellow hreyfingunni og Rótarý hreyfingunni.
- Önnur mál.
- Undirbúningur aðalfundar: Bjarney Harðardóttir og Garðar Garðarsson munu ekki gefa kost á sér til endurkjörs í stjórn. Stjórnarmenn skoða stofnfélagalistann vegna stjórnarkjörs. Ekki hafa borist svör frá þeim sem til var leitað vegna málþingsins í lok aðalfundar.
Fundi slitið kl. 17.30
Anna Stefánsdóttir ritaði fundargerð