Flýtilyklar
Vill selja eignir ríkisins
20.02.2015
Kristján Þór Júlíusson heilbriðisráðherra er hlynntur sölu eigna til að fjármagna nýbyggingar Landspítala. Þetta kemur fram í viðtali við ráðherra í Fréttablaðinu í dag. Þar segir ráðherra m.a að ekki sé hægt að draga byggingarframkvæmdir á langinn.
Ráðherra sagði meðal annars: Ég held að það sé líka almennur vilji í þjóðafélaginu að við rekum hér heilbrigðisþjónustu sem stenst samanburð. Liður í því að halda þeirri stöðu er að geta búið sjúklingum fyrirmyndar aðstöðu og starfsfólki sömuleiðis, sem er í mínum huga löngu tímabært.
Allt viðtalið má lesa hér