Flýtilyklar
Úrelt hugsun í skipulagsmálum að staðsetja stórar stofnanir í jaðri byggðar
14.12.2015
„Það er að mínu mati úrelt hugsun í skipulagsmálum að setja stórar stofnanir niður á jaðri byggðar þar sem þær eru fyrst og fremst aðgengilegar með einkabíl. Það er hugmyndafræði sem flest samfélög hafa horfið frá í skipulagsmálum og leysir í rauninni engan vanda, en viðheldur því ástandi sem verið er að reyna að breyta í skipulagsmálum höfuðborgarsvæðisins“.
Þetta er meðal annars það sem fram kemur í viðtali við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, forstjóra Skipulagsstofnunar í viðtali í Læknablaðinu.
Allt viðtalið má lesa hér.