Flýtilyklar
Sjúkrahótel afhent fullbúið til notkunar 31. janúar
26.01.2019
Sjúkrahótelið er fyrsti áfangi í uppbyggingu Landspítala. Öll aðstaða í sjúkrahótelinu er til fyrirmyndar, meðal annars er þar sérútbúin aðstaða fyrir fjölskyldur og einstaklinga í hjólastól. Áhersla verður lögð á heimilislegt umhverfi og gæði í veitingaþjónustu, heilbrigðistengdri þjónustu. Þá verður rík áhersla lögð á að veita félagslega ráðgjöf, endurhæfingu og aðra stoðþjónustu sem mikilvæg er fyrir sjúklinga á batavegi.
Aðstandendur geta verið mikilvægur þáttur í bataferli sjúklinga og á sjúkrahótelinu er tekið tillit til þess.
Gistirými sjúkrahótelsins eru 75 og með tilkomu þess er stigið stórt skref í betri þjónustu Landspítala.