Flýtilyklar
Landsamtökin Spítalinn okkar
Mikill fjöldi fólks víðs vegar að úr þjóðfélaginu sótti stofnfund landsamtakanna Spítalinn okkar sem haldin var 9 apríl sl. Á fundinum var Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi kjörinn formaður. Anna er fyrrverandi framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala.
Töluverður hópur manna úr ýmsum stéttum vann að undirbúningi að stofnun landsamtakanna sem hafa þann tilgang að vinna að nýbyggingu og endurnýjun á Landspítala þannig að húsakostur og umhverfi sjúklinga og aðstaða starfsfólks spítalans þjóni nútíma þörfum. Markmið félagsins er að afla stuðnings meðal almennings og stjórnvalda við nauðsynlegar úrbætur á húsakosti spítalans, að kynna fyrirliggjandi áætlanir um endurnýjun og viðbætur við húsnæði spítalans og að draga fram valkosti í fjármögnun og framkvæmd verkefnisins. Samtökin eru öllum opin. Á þriðja hundruð manns höfðu gerst stofnfélagar í Spítalanum okkar við lok stofnfundarins.