Flýtilyklar
Fullnaðarhönnun nýs meðferðarkjarna Landspítala boðin út
27.04.2015
Það eru sannarlega gleðifréttir að fullnaðarhönnun meðferðarkjarna Landspítala var boðin út síðastliðna helgi. Meðferðarkjarninn er geysilega mikilvæg bygging, sú stærsta í framkvæmdum við nýbyggingar Landspítala. Stærð hans er áætluð tæplega 60.000 m2 og hann mun hýsa alla bráðastarfsemi á einum stað, meðferðar- og legudeildir. Í útboðsauglýsingunni kemur fram að skila eigi tilboðum eigi síðar en 25. júní næstkomandi. Stjórn Spítalans okkar mun fylgjast með framgangi málsins. Sjá útboðið hér