Flýtilyklar
Byggingasjóður fyrir Landspítala
25.09.2014
Þrír þingmenn Vinstri grænna, með Steingrím J. Sigfússon sem fyrsta flutningsmann, lögðu í dag fram frumvarp um byggingarsjóð Landspítala. Þar er gert ráð fyrir að auðlegðarskattur verði tekinn upp á nýjan leik og notaður til að fjármagna byggingu nýs Landspítala. Frá þessu var greint í fréttum RÚV í dag.